Arkitektar og aðalhönnuðir Garðabrautar 1 eru Skala: arkitektar. Alúð hefur verið sett í
hönnun íbúða og áhersla lögð á vel skipulögð, stílhrein og björt rými þar sem flæði á milli
rýma er gott og hver fermetri nýttur af kostgæfni. Aukin lofthæð og veglegir gluggar sem
hleypa náttúrulegri birtu inn bæta birtuskilyrði innan íbúða. Þá eru loft og veggir íbúða
hvítmáluð í sérblönduðum hvítum lit og allar hurðir sprautulakkaðar hvítar. Hurðir innan
íbúða, af gerðinni Ringo frá Birgisson, mæta aukinni lofthæð og eru því sérsmíðaðar.
Inngangshurðir íbúða, sömuleiðis frá Birgisson, eru hvítar, yfirfelldar timburhurðir með
eldvörn og hljóðdempun skv. byggingarreglugerð. Stílhreinir L-Form hurðarhúnar úr áli, gefa
hurðunum tímalaust yfirbragð. Rafmagnstenglar og rofar eru hvítir, GIRA S55 frá
S.Guðjónsson.
Útlit innréttinga, litir og áferð er sígilt og hlýlegt og hugsað sem góður grunnur fyrir
fjölbreytilegan og persónulegan stíl íbúa. Vandlega valin “smáatriði” eins og höldur og
borðplötur gefa nútímalegt yfirbragð. Innréttingar eru allar í björtum og einstaklega
fallegum ljósgráum lit sem tónar vel við aðra heimsins liti. Hið rótgróna íslenska
fyrirtæki, GKS, útvegar innréttingar og sér um uppsetningu þeirra. Í öllum svefnherbergjum
eru vandaðir fataskápar frá samstarfsaðila GKS, austuríska fjölskyldufyrirtækinu EGGER, sem
hefur sérhæft sig í framleiðslu úr timbri frá árinu 1961 og leggur ríka áherslu á sjálfbærni
og nýtingu dýrmæts efniviðar. Skáphurðir eru með mjúkri, mattri áferð og veglegum svörtum
höldum frá Nobilia.

Eldhúsinnréttingar eru stílhrein gæðasmíði frá þýska framleiðandanum Nobilia sem eins og
EGGER leggur ríka áherslu á sjálfbærni í sinni framleiðslu. Innréttingin af gerðinni Laser
651 í lit sem Nobilia kallar 417 Satin Grey og er sá sami og litur fataskápanna þó
framleiðandinn sé annar. Borðplötur eur 38 mm þykkar í ljósum Concrete Sand lit með
yfirborðsáferð sem minnir á steypu. Brúnir eru með frágangi sem Nobilia kallar décor og
hafðar í möttum svörtum lit sem gefur eldhúsinnréttingunni nýstárlegan karakter.Skúffur eru
allar með nBOX skúffukerfi og nýstárlegum svörtum Nobilia 502 griphöldum, þeim sömu og
fataskáparnir.
Auk veglegra glugga sem hleypa dagsbirtu inn hefur verið hugað að raflýsingu innanhúss.
Loftljós eru af gerðinni Gamma Mini, frá Reykjafelli. Neyðarlýsing er innbyggð ljós og á
svölum íbúða er lýsing Marta 90, GU10 frá Rafkaup.
Frontar
Ljósgrái liturinn sem valinn hefur verið á allar innréttingar er sambærilegur RAL 7047. Hjá Egger, sem framleiðir fronta fataskápa, heitir liturinn Light Grey og hjá Nobilia, sem framleiðir fronta eldhúss- og baðinnréttinga, kallast hann Satin Grey.